Fer forsetinn næst

Nú er ríkisstjórnin farin sem klúðraði eftirliti með eftirlitsstofnunum.

 

Davíð fer næst sem stjórnandi eftirlitsstofnunar.

 

Hvenær fer Ólafur Ragnar?  sem hvatti og ferðaðist vítt og breitt með útrásarmönnunum.


mbl.is Davíð undir væng Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvískinnungur

Tvískinnungur réttarkerfisins:

 1. ef hann er síknaður af því að flengja kærustuna vegna bsdm þá átti náttúrulega að kæra hann fyrir kynferðislega áreitni við drengina því hann fær bersýnilega eitthvað út úr flengingum.

2. ef hann er síknaður af því að flengja drengina vegna þess að það er í lagi að flengja óþekk börn þá hlýtur það að vera sök að flengja fullorðinn einstakling.  Þ.e.a.s. líkamsárás.

 

Tvískinnungur borgaranna:

1.  Það er bannað að refsa börnum vegna þess að það má ekki en samt viljum við koma í veg fyrir óaga en það má samt ekki snerta börn.  Þá er maður ekki að tala um líkamsmeiðingar.  Rassskelling er ekki líkamsmeiðing ef hún er notuð af heilbrigðri skynsemi.

2.  Krakkar nú til dags eru agalausir og það þarf að bæta það.  Hvernig jú með því að kynna það fyrir þeim að það er algjörlega bannað að snerta þá og þeir geti kært Pétur og Pál fyrir að taka í öxlina á þeim eða ýta þeim út úr skólastofu.  Hvernig heldur fólk að þetta endi.  Sumir krakkar eru með skóla og kennara í skrúfstykki því að það má ekkert, það má ekki reka krakka úr skóla sem haga sér illa.  Það má ekki koma við þá vegna þess að þeir gætu fengið marblett.  En samt stunda þau íþróttir þar sem snerting veldur oft meiðslum. 

3. Auðvitað er allt best í hófi.  Foreldrar verða annað hvort að sætta sig við að sumir krakkar eru óþekkari en aðrir og taka ekki mark á töluðu orði, rífa kjaft og níða jafnaldra jafnt sem foreldra.  Auðvitað verður að taka á því með þeim verkfærum sem til eru.  Láta þau vita að þau ráði ekki.  Að það sé ekki sjálfsagt að þau geti haldið heilu bekkjunum í gíslingu því að það er ekkert hægt að gera.  Foreldrar vinna meira úti, sjá krakkana sjaldnar og veita þeim það sem þau biðja um.  Svo koma þau í stofnanir eins og skóla og þar lenda þau á þeim vegg að fá ekki að stjórna öllu sem gerist í kringum þau.  Það verður erfitt en til þess að gera krakkana að almennilegum borgurum verða kennarar og starfsmenn skóla að kenna þeim ýmislegt sem þau ættu að læra heima hjá sér eins og kurteisi, hlýðni, jákvæð samskipti og virðingu fyrir öðrum ásamt fleiru. 

Að sjálfsögðu er um mjög fá börn að ræða sem falla undir þetta og í margir skólar eru alveg lausir við þetta vandamál sem betur fer.

Ofbeldi er alltaf versta úrræðið en er samt úrræði og ofbeldi er teygjanlegt hugtak sem verður aldrei samstaða um hvenær breytist úr umvöndun í ofbeldi.

Svo það sé á hreinu þá er ég á móti ofbeldi og hef ekki og mun ekki rassskella börnin mín en ég dæmi ekki þá sem það gera nema sjái á barninu á eftir.

 


mbl.is Mátti flengja drengi kærustu sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glötuð tækifæri

Nú var kúkað upp á bak.  Allt í lagi að að draga úr væntingum af fyrirhugaðri málsókn vegna þess að það hefði verið vonlaust að vinna hana. En að benda á að þá hefði verið að sóa peningum rétt eftir háðulega útreið úr gæluverkefninu hjá öryggisráðinu er ekki góð leið.  Nær hefði verið að benda bara á að allir / flestir töldu að ekki hefði verið líklegt að við hefðum unnið.  Peningar eru aukaatriði enda ekki um stóra upphæð í sjálfu sér að ræða miðað við það sem var mokað í gæluverkefnið og í önnur gæluverkefni s.s. sendiráðóráðsíuna og fleira.

Ingibjörg Sólrún missti hins vegar af gullnu tækifæri til að koma standandi niður úr þessu þegar hún veiktist í haust.  Þá hefði hún átt að draga sig vegna veikinda úr stjórnmálum tímabundið og koma sterk inn þegar kosið væri næst ef hún kæmi þá eitthvað til baka. 

Auðvitað skiptir það í sjálfu sér ekki máli þó málið myndi tapast, með því að fara í mál hefði verið bent á það sem gert var án okkar aðildar til að hjálpa bönkunum við að sporðreisast og renna örugglega í dýpið, kannski hefðu þeir gert það sjálfir´.


mbl.is Væntu of mikils af dómsmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni fjárglæfraráðherra

Ég er afskaplega undrandi á honum Árna að segja ekki af sér þrátt fyrir ítrekuð embættisglöp.  Hann er náttúrulega fjármálaráðherra og bankahrunið hefði átt að hrynja eins og himnarnir á Aðalrík Gaulverja og taka hann með sér í fallinu.  En nei ekki var það nagli í kistu karls.  Áfram skyldi haldið.  Nú í síðustu viku álítur umboðsmaður alþingis að hann hafi gert stór og mikil embættismistök við að ráða Þorstein Dabba Kóngsson sem dómara en það er ekkert til að kippa sér upp við þó svo að brotin hafi verið lög.  Þetta reddast.

Að öðru ef við gefum okkur að Árni hefði haldið sig við það sem hann á að kunna, a.m.k. betur en að stýra fjármálum lýðveldisins, dýralækningar.  Ef hann væri starfandi dýralæknir og hefði fellt heilt kúabú vegna mistaka t.d. farið bæjarvillt þegar kúariða hefði komið upp á Brekku en hann fór óvart á Læk og slátraði öllum kúnum þar.  Hann hefði sennilega verið látinn sæta ábyrgð, a.m.k. hefðu bændur hugsað sig tvisvar um áður en þeir hringdu næst. 

Hann hefði hugsanlega gert slíkt hið sama við riðuveiki, lógað einhverjum kindum á vitlausum bæ og þurft að taka hatt sinn og staf enda er það ekki látið viðgangast að slátra skepnum af eintómum skepnuskap eða heimsku.

Hins vegar má slátra heilu byggðarlögunum, fjölskyldunum, fyrirtækjunum án þess að votti fyrir samviskubiti.  Það má í leiðinni bjarga börnum flokksmanna með vinnu sem gefur ágætlega af sér og er ágætis leið upp að kjötkötlunum þegar fram líða stundir.

Árni, ég veit reyndar að það myndu ekki margir hafa samband ef þú færir í dýralækninn en dýrin hljóta samt að skilja þig betur en mennirnir því að þú galar bara tóma vitleysu.

En samt... ég vil ekki dýrum það illt að þú komir nálægt þeim, spurning um vinnu í álveri, við meindýraeyðingu.  Þú þarft reyndar ekkert að fara langt til að æfa þig í meindýraeiðingu, þú getur byrjað í alþingishúsinu, þar er víst nóg af nagdýrum sem naga af sér hendurnar frekar en að sýna þær skítugar.


Ólafur bestur

Að þessu sinni var ekki nokkur spurning um hver yrði fyrir valinu og sjálfsagt vandfundinn sá maður sem er á öðru máli.

Allt liðið hefði kannski komið til greina líka.

Á Bessastöðum fengu þeir fálkaorðu í sumar en nú fyrir áramótin hefði verið gaman að sjá einhvern fulltrúa kvennalandsliðsins t.d. þjálfarann fá fálkaorðu fyrir þeirra afrek.


mbl.is Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hans allra síðasta verk...

Hann náði kellingunni áður en hún gat jarðað hann.  Spurning hvernig hann dó.
mbl.is Ekkjan lést á leið í kirkjugarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein vitleysan frá ríkisstjórninni

Almenningur í landinu og þar með talin forysta Alþýðusambandsins hefur og á að hafa skoðun á ríkisstjórninni.  Almenningur og A.S.Í. getur haft áhrif á það með kosningu hverjir sitja á þingi.  Ríkisstjórnin er hins vegar ekki aðili að A.S.Í. og getur þar af leiðandi ekki haft áhrif á hverjir sitja þar í forsæti.  Hvað er að þessum alþingismönnum eru þeir ekki búnir að skíta nóg upp á bak.
mbl.is Vegið ómaklega að ráðherrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ammmmm-æli

Ég minnist þess ekki að hafa fengið boðskort.  Til hamingju með ammmmm-ælið stelpur
mbl.is Íslensku fjórburarnir tvítugir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

nýtt

Langar að prófa eitthvað nýtt...  Hann er nýbyrjaður hjá Fylki og gefst strax upp í stað þess að harka af sér og reyna að gera betur á næstu leiktíð.. looser.
mbl.is Ian Jeffs: Langar að prófa eitthvað nýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Palli

Hann kemur til með að bjóða upp á samloku knús og fyrir vikið standa strákarnir vel saman næsta sumar.. áfram Fylkir
mbl.is Páll Einarsson aðstoðar Ólaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband