31.10.2007 | 12:08
40.000 ár
Hryðjuverkamenn í Madrid dæmdir í 40 þúsund ára fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2007 | 20:30
Þrot
Eyjólfur: Ég er ekki kominn í þrot með þetta lið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2007 | 20:20
Eyjólfi ekki um að kenna
Ljótur skellur Íslands í Liechtenstein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2007 | 10:30
Landsambandið
Vantrausti lýst á Margréti Sverrisdóttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.10.2007 | 18:16
Landsleikur
Ísland lá fyrir Lettum í dag og var það e.t.v. fyrirsjáanlegt. Það sem var ekki fyrirsjáanlegt var hversu værukærir Íslendingar voru í vörninni, þeir ætluðu að spila eins og Ítalía eða Spánn út úr vörninni en Lettar pressuðu stíft og hirtu boltann trekk í trekk rétt utan vítateigsins. Steininn tók þó úr þegar Kári nokkur Árnason birtist, ég hélt að hann væri búinn með sinn kvóta sem farþegi í landsliðslestinni en svo er greinilega ekki.
þegar kemur að öðrum leikmönnum er óhætt að segja að menn voru nokkuð frá sínu besta og voru alveg búnir þegar leið að lokum leiksins. Menn sátu fastir á hælunum og komust ekki af stað á móti boltanum og hættu að hlaupa í eyður heldur biðu eftir að fá boltann í fæturna. En svona er þetta.. við tökum vonandi næsta leik sem er á móti Lichtenstein.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2007 | 08:26
Raunasaga úr sjávar"þorpi"
Brátt við Bingi skyldum funda
Í Breiðholtið hann mun skunda
En einhver töf er enn á því
Annað hann fór víst í dömufrí.
Þar var kominn Glanni glæpur
Getulaus í höfði tæpur
Hann brosti hér en þar brast í grát
Bara sagðist vera mát.
Hann sér kuta góðan keypti
Keyrði í bak mitt og af byssu hleypti
Skaut mig niður af stalli þeim
Skemmdi frægð mín´um allan heim
Það vita:..
Bingi Framsóknar og Dabbi læknisins
Guðni orðheppni og Marteinn mosdalinn
Geiri Sjálfstæði og Yoko Onoin
Hringur stjarnanna
Og einnig ég
Atkvæði vildi ég aðeins veiða
Vildi ekki Binga meiða
En hann sagði mér fara heim
Hann tók í höndina á ÞEIM
Hann ætlar víst öllu hér að ráða
Hans fortíð veldur mér þó kláða
Hann rembist einn sem rjúpa við staur
Reynir að sanka að sér aur..
Það vita:.
Dabbi læknisins og Svandís vinstri græn
Denni dæmalaus og tími minn kemur
Alfreð alvitur og Margrét Sverris Sverr
Dabbi í bankanum....
Og einnig ég
Reiður orðinn rölti til Geira
Reyndar sagðist hann ei vilja heyra
Sagði Villi æi andskotans
Reynd´að komast brátt til manns
Friðarsúlan friðsæl stendur
Fór ég þangað ekkert kenndur
Friður var þar fínn um allt
Nú friður er úti mér er kalt
Brátt maður verð ég í minnihluta
Marteinn á reyndar góðan kuta
Stingur hann mig strax í bak
Sterkt hefur hann á mér tak
Ég kúri heima og klökkur vona
Kannski fer þetta ekki svona
Er þetta draumur sem deyr út senn
Dagur kemur ég ræð hér enn
Það vita...
Dabbi læknisins og Júlli Vífillinn
Hannes Hólmsteinninn og allir íslenskir
Yoko Onoin og gömlu bítlarnir
Restin af heiminum....
En ekki ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2007 | 21:07
Borgarstjórn
Merkilegt hvað gerðist í vikunni. Menn sem hafa stungið hvern annan í bakið eru orðnir samstarfsmenn í dag. Hvað gera menn ekki fyrir smástund á stjórnarstólunum. Eins og nokkrir þeirra hafa nefnt þá vilja þeir vera í meirihluta og er það þá til þess vinnandi að ganga á bak orða sinna, stefnu flokks síns ef að það dugar til að fá að "ráða". En ráða þeir einhverju, hverjir ráða ef allir eru með mismunandi stefnu. Verður þá ekki niðurstaðan sú að enginn flokkur fær sínu framgengt en allir eitthvað smá eða hvað.. Björn Ingi hefur nú sýnt það að ef hann vill eitthvað heitt þá verður það að ganga annars verður hann reiður - og fer að gráta.
Svandís ætlar að stjórna Orkuveitunni harðri hendi en Björn er þar áfram. Flokkarnir hafa samþykkt að láta Orkuveituna ganga í gegnum mikið skoðunarferli en það væri nær að láta Björn Inga, Vilhjálm og Alfreð Þorsteins ganga í gegnum skoðunarferli, hafa þeir persónulega hagnast eitthvað á þessu endalausa brölti með Orkuveitu Reykjavíkur...
Hvar endar þessi endaleysa... og hvernig.
Nú hlýtur allt að falla í ljúfa löð því að Dagur er með lausn á Sundabraut, Svandís er með lausn á Orkuveitumálum, Samfylking er með lausn á leikskólavandanum og eflaust kennaralaunavandanum líka, Frjálslyndir eru engin lausn og Björn Ingi er með lausn á heimilisútgjöldum sínum enda heldur hann öllum sínum bitlingum enda með eindæmum saklaus.
8.10.2007 | 22:20
Skammtastærðir..!!
Nú er skammtafræði ekki eingöngu í náttúruvísindum heldur einnig og ekki síður í viðskiptafræði. Það var áhugaverður þáttur í sjónvarpinu um mat og stærðir á skömmtum ásamt fleiru. Ég fór að velta fyrir mér og rifja upp skammta og stærðir hér áður fyrr. Þá keypti maður sér litla eða stóra (33cl) kók og kannski lítið eða stórt prins póló. Nú er stórt prins póló orðið lítið prins pólo og til er XL prins póló og svo er stór kók orðin hálfur líter og maður sér krakka með tveggja lítra kókflösku á vörunum. Það er miklu fleira, mars og XL mars, Kit Kat og 30% frí viðbót við eðlilega stærð. Popp í bíó er bara grín, lítill popp er eins og stór var, kókglös í bíó eru stórt, mjög stórt eða risa stórt. Pizzur eru allt of stórar, enginn kaupir þessar litlu. Ef maður fer í ísbúð og kaupir barnaís þá er hann jafnstór ef ekki stærri en venjulegur ís var fyrir 3 - 4 árum. Allt gos er drukkið úr hálfslítra brúsum og þykir það tíðindum sæta ef menn kaupa appelsín eða kók í gleri (litla) en ekki hálfan líter hið minnsta.
Fólk horfir á hreyfingarleysi og kennir því um hvernig næsta kynslóð er orðin. Auðvitað er hreyfingarleysi hluti af vandamálinu en er ekki hin ellan magnið sem látið er ofan í sig. Það er tilboð á kóki... þú kaupir sex 2ja lítra flöskur og færð 50 krónur í afslátt og hvað gerist, ansi margir skella kippunni í körfuna og þegar 12 lítrar af kóki eru til þá er enginn hægðarleikur að hafa hemil á drykkjunni meðal heimamanna. Kexpakkar eru með 50%extra ókeypis.
Við erum orðin svo blind á þetta að við tökum þetta sem sjálfsagðan hlut en það eina sem gerist er að neyslan á þessum vörum sem oftar en ekki eru "óhollar" eykst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.10.2007 | 17:10
F.H. bikarmeistari - Fylkir í Evrópukeppni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 14:03
Stjórnmálaóreiða
Það er alveg með eindæmum hvað stjórnmálamenn eru sjálfhverfir.
Framsóknarflokkurinn rétt nær einum manni inn í borgarstjórn og sest hann í oddasæti og veður yfir borgarbúa á skítugum skónum og hirðir allar þær krónur sem koma inn á vegum veitufyrirtækja og skiptir upp á milli hirðmanna sinna. Hann hefur nákvæmlega ekkert fylgi á bak við sig og það er hreint með ólíkindum hvað hann er að gera miðað við fylgið.
Sjálfsstæðisflokkurinn er ekkert skárri að hafa ekki burði til þess að standa upp og slíta samstarfinu í kjölfar svona fáránlegra samninga. Það verður gaman að fá reikninga fyrir orku inn um lúguna eftir einhver ár þegar strákarnir í borginni hafa klúðrað einhverri yfirtökunni og verða að hækka verðið á rafmagni / heitu vatni til að klóra yfir klúðrið, en hættir einhver, nei... hér þarf ekki að bera ábyrgð á klúðrinu nema þá hjá þeim sem reka heimilin þeir þurfa að axla ábyrgð en þeir sem reka fyrirtæki/stofnanir þeir eru í peningaáskrift hjá fjármálaráðuneytinu.
Merkilegt að forstjórar stofnana skuli ekki fjúka þegar ár eftir ár er farið heiftarlega fram úr fjárveitingum... ég veit að bankinn minn myndi ekki leyfa mér þetta..
Svo er annað líka en það er yfirtaka sveitarfélaga á verkefnum frá ríkinu. Sveitarfélögum er afhent verkefni sem kosta gríðarlega mikið en fá lítið sem ekkert með þessum verkefnum frá ríkinu. Sveitarfélögin eru eins og smákrakkar (án þess þó að ætla að gera lítið úr smákrökkum) sem fá nýtt dót, verða alsæl að fá fleiri leikföng en geta svo ekki gert neitt almennilegt úr því. Hvernig væri að sveitarfélögin tækju yfir rekstur landsvirkjunar og annarra stofnana sem gefa eitthvað af sér frekar en taka að sér það dýrasta og standa eftir slipp og snauð. Það er ekki furða að ríkiskassinn skili afgangi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)