Eyjólfi ekki um að kenna

Ég er ekki sammála því að Eyjólfur eigi að fara.  Við vorum að spila á útivelli við þjóð sem er betri en við í fótbolta og því fór sem fór.  Svo var náttúrulega vont veður, slæmar vallaraðstæður, ferðaþreyta í leikmönnum og þynnka.  Leikmenn skildu ekki útlenskuna sem dómarinn talaði en það var á sama máli og Villi skildi ekki nokkrum dögum fyrr og svo til að kóróna ferðina þá var ekki boðið upp á svið og harðfisk í útlandinu þannig að okkar mönnum er vorkunn að þurfa að ferðast yfir höf og lönd til að etja kappi við ofurefli.  Verum bara ánægðir að einhverjir nenna að standa í þessu.
mbl.is Ljótur skellur Íslands í Liechtenstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband