Það er nú meiri eymdin hjá þjóðinni

Auðvitað er slæmt að missa vinnuna.  Ráðamenn banka og ríkis hafa gert dálítið í buxurnar og það er einhver slæm lykt af þessu öllu.  En er eymd hjá þjóðinni.  Það er vöruskortur í búðum því menn hamstra svo mikið, það er örtröð í verslunarmiðstöðvum sem eru að opna, Kringlukast var fjölmennt, veitingastaðir eru / voru vel sóttir (um síðustu helgi).  Hinn almenni launþegi sem ekki náði kökusneið af velmeguninni fær enn greidd laun.  Sparnaður hefur horfið hjá mörgum en lífið heldur áfram.

Nú ætti ríkið að gera tvennt. 

1)   Ríkisvæða kvótann.  Koma honum í hendur sveitarfélaga úti á landi þannig að hann verður þar.  Úr því að hægt var að yfirtaka bankana hlýtur að vera hægt að gera slíkt hið sama með kvótann því að hann hefur verið misnotaður til að búa til þessi bankaveldi.   Ekki gefa þessum mönnum tækifæri til þess að nota kvótann til að koma sér á fætur á ný.  Þeir verða að taka sér hamar og sög í hönd eða hníf og fara í frystihús. 

2)  Frysta eigur þeirra manna sem fóru með bankana á hausinn.  Það ætti náttúrulega að hafa gerst á sama tíma og bankarnir voru teknir yfir.  Stjórnendur eru sjálfsagt komnir með reikninga á Cayman eyjum eða í Sviss þar sem ríkisstjórnin getur ekki nálgast þá núna.

En við þessi venjulegu erum náttúrulega að fá verðbólgu í hausinn og gengisfall krónunnar.  En við getum ekkert gert.  Ef við æsum okkur yfir þessu þá látum við þetta fara með okkur andlega, líkamlega og fjárhagslega.  Látum þetta fjárhagslega áfall duga, höldum andlegu og líkamlegu hreysti, hættum að horfa á sjónvarp, hlusta á útvarp, lesa blöðin.  Drífum okkur út að ganga, hjóla, hlaupa, horfa á börnin okkar og hlæja með þeim.

Þá líður okkur strax betur.


mbl.is Bankamenn í tilfinningarússi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Davíð Oddson er maðurinn sem eyðilagði Ísland

Hvet ykkur til að skrifa undir

http://www.petitiononline.com/fab423/

Ragnar (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 15:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband