nýliðun

Merkilegt að leikmaður sem er varamaður í 21 árs liðinu skuli vera kominn í a landsliðið.  Ég hefði haldið að það væru allnokkrir í 21 árs liðinu á undan eða eru þjálfararnir svona ósamstíga.  Auk þess hefði maður haldið að leikmenn sem eru með meiri reynslu ættu að vera frekar en varamaður í unglingalandsliði.  Merkilegt...
mbl.is Fjórir nýliðar gegn Færeyjum og Mexíkó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Vegir Drottins eru órannsakanlegir, en ég held að það sé enn erfiðara að rannsaka vegi Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara.

Gísli Sigurðsson, 5.3.2010 kl. 21:34

2 Smámynd: Leifur Finnbogason

Veistu nokkuð eitthvað um leikmanninn sem um ræðir?

Til gamans má nefna að hann hefur spilað fjóra af sex leikjum u-21 landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins, þarsem þeir eru fyrir ofan meistara Þýskalands í riðlinum. Í þessum fjórum leikjum hefur hann skorað þrjú mörk, auk þess sem hann var með markahæstu leikmönnum Íslandsmótsins í fyrra. Ef ég man rétt var hann í þriðja sæti (ef ekki, fjórða), fyrir aftan Björgólf Takefusa og Atla Guðnason, sem báðir eru í hópnum.

Ef ég man einnig rétt spilaði u-21 landsliðið 4-3-3, með tvo mjög framliggjandi kantmenn sem tvo af þessum framherjum. Sem þýðir að aðeins eitt hreint framherjapláss var laust, sem fór til Kolbeins, sem einnig er í A-hópnum. Þú vilt kannski stinga upp á betri, reynslumeiri framherja sem er laus í leikina?

Leifur Finnbogason, 6.3.2010 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband