Æfingaleikur mikilvægari ?

Af hverju í ósköpunum halda Íslendingar að A liðið eigi skilyrðislaust að hafa forgang með leikmenn.  21 árs liðið er í góðum málum, þurfa að vinna og sjá fram á lokakeppni, eitthvað sem myndi skila sér verulega vel í A liðið seinna en æfingaleikur við Kýpur er talinn mikilvægari.  Englendingar t.d. nota ekki leikmenn sem eru gjaldgengir í 21 árs liðið ef þeir telja að það sé betra að hafa þá þar en í A hópnum.  Auðvitað verður að horfa á heildina og leyfa 21 árs liðinu að njóta þess hve langt það er komið og spila með okkar sterkasta lið þar.  Hvílík vitleysa.
mbl.is „Við erum líka með gott lið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæður duglegar...

En pabbar... hvaða rugl er þetta. 
mbl.is Púla með afkvæmin í kerrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Ég er ekki Arsenalmaður en Arsenal spilar flottasta fótboltann.  Frábært að leikmenn sem eru góðir og vilja spila flottan fótbolta velja sér lið eftir spili þess en ekki fjármálum.
mbl.is Chamakh vill fara til Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært

Vonandi verður fjölmenni og Alexander látinn endurtaka tæklinguna.  Þar sem ég mæti ekki vona ég að Adolf Ingi verði fenginn til að stjórna samkomunni með sinni alkunnu fullyrðinga og viðtalssnilld.
mbl.is Flogið með landsliðið til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greyið Kínverjarnir

Það er alveg merkilegt að fólk má ekki gleðjast neins staðar án þess að þurfa að sprengja Kínverja.  Eins gott að Íslendingar eru fámennir.
mbl.is Egyptar urðu Afríkumeistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með fullri virðingu

fyrir fyrirliðanum þá var Arnór hreint stórkostlegur sem og Vignir.  Ólafur var góður en mér fannst hann ekki bestur.
mbl.is Lund: Ísland spilaði glæsilegan handbolta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppröðun

Skrítin uppröðun á leikjum í milliriðli.  Ég hefði haldið að efstu þjóðirnar myndu spila úrslitaleik í restina til að komast að því hvor vinni milliriðilinn.  Þ.e.a.s. Ísland byrji á móti Noregi, á Rússum og endi á Króötum.
mbl.is Mikið sjálfstraust í liðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirséð

Rúnar átti aldrei möguleika og Þórir eiginlega ekki heldur þar sem hægri vængurinn er gríðarlega sterkur.  Ragnar var að keppa við Aron, Snorra og Ólaf.  Lítill séns fyrst Logi slapp í gegn.
mbl.is Ólafur og Logi fara á EM en Ragnar og Rúnar sitja eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli flugeldavörðurinn hafi lifað af

Eru engar frekari fréttir af þessum flugeldaverði. 

En var ekki bara "eðlilegt" að verðið hækkaði eins og allt annað. Maður velur bara úr það "nauðsynlegasta" og kaupir það.


mbl.is Sprenging varð í flugeldaverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver verður kosinn...

Ég ætla að spá  því þvert gegn vilja mínum að Eiður Smári hinn vængjaði varamaður hljóti hnossið fyrir það að hafa verið í Barcelona þegar þeir unnu Meistaradeildina.

 

Helena Sverris hefur verið að gera góða hluti í mekka körfunnar.

En ætli það verði ekki annað hvort karl eða kvenmaður í knattspyrnu sem vinnur því stelpurnar komust á lokamót EM þrátt fyrir að hafa ekki náð í stig þar.

Óli Stefáns er líka þarna með ótal dollur, Björgvin spilar með of lélegu liði, Guðjón hefur ekkert unnið af viti í ár.  Aðrir fylgja í humátt..

 

Mín spá sem sagt Eiður (eða Þóra frekar en Hólmfríður hin eigingjarna)


mbl.is Tíu efstu í kjöri íþróttamanns ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband