29.1.2010 | 10:38
Með fullri virðingu
fyrir fyrirliðanum þá var Arnór hreint stórkostlegur sem og Vignir. Ólafur var góður en mér fannst hann ekki bestur.
Lund: Ísland spilaði glæsilegan handbolta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Óli leynir oft á sér, en Arnór var mjög góður og átti skilið að vera valinn bestur í leiknum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 29.1.2010 kl. 12:39
Þegar Óli er tekin úr umferð verða hinir að taka af skarið og Arnór gerði það svo sannarlega í þessum leik
10 mörk úr 12 tilraunum, ótrúlegur árangur.
Arnór skaut okkur í undanúrslitin. Það má hann svo sannarlega eiga. En þetta er ekki einstaklingsíþrótt ;) og hinir spiluðu frábærlega líka.
Má segja að varamarkmaðurinn okkar hafi bætt fyrir mistökin í leiknum gegn Austuríki. Hreiðar Leví stóð sig frábærlega í markinu. Vörnin var ágæt. Og þegar allt þetta er tekið saman... að þá er það frábær íslenskur sigur!
Ég spái Íslandi Bronsi á þessu móti.
Óheppni að fá Frakkana þarna .. þeir eru ríkjandi Ól og Heimsmeistarar.. og eru með eitt besta liðið í heiminum, ef ekki það besta. - Ísland verður að hitta á sinn besta leik ef við eigum að vinna frakka og allt verður að ganga upp. Verðum að nýta öll færi, engin klaufaleg mistök. Þá kannski höfum við möguleika.
ThoR-E, 29.1.2010 kl. 12:54
AceR: En að sama skapi benti einhver á að Frakkar eru nú þegar öruggir inn á heimsmeistaramótið. Ef eitthvað annað lið hefði komist í undanúrslitin í staðinn fyrir þá þá hefðum við þurft verðlaunasæti til að tryggja þátttökurétt á heimsmeistaramótinu.
Sel þetta ekki dýrara en ég keypti það en það var örugglega einhver íþróttafréttamaður að tala um þetta.
Páll Jónsson, 29.1.2010 kl. 14:04
Þetta er satt Páll.
Fyrst frakkarnir komust í undanúrslitin sem ríkjandi heimsmeistarar og þurfa ekki að tryggja sig inn á HM, að þá komast hin 3 liðin sjálfkrafa á HM. Meira að segja liðið sem lendir í 4. sæti.
Þannig að við erum með öruggt sæti á HM á næsta ári, þótt við lendum í fjórða sætinu. Mjög heppilegt.
ThoR-E, 29.1.2010 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.